mánudagur, febrúar 12, 2007

Málin skýrast !

Þá er það afráðið að ég fer í aðgerð um mánaðarmótin apríl/maí, þó trúlega í byrjun maí.

Ég hefði trúlega getað farið mánuði fyrr en ég tými ekki að missa af páskunum, og þó sérstaklega föstudeginum langa, í kirkjunni.

Þetta gefur mér líka lengri tíma til að undirbúa mig.

Ég hef sem sagt lokið 5 vikna prógramminu á Reykjalundi og er að búa mig undir aðgerð.

Veran á Reykjalundi var æðisleg!

Ég vissi svo sem alltaf að allt það starf sem er unnið þar er ákaflega mikilvægt og gott, en eftir veruna þarna er ég staðráðin í að kaupa mér happdrættismiða í SÍBS og, að minnsta kosti, þannig styðja við þetta stórkostlega starf sem þarna er unnið.

Og svo ætla ég að fara þangað og syngja fyrir fólkið eins oft og við er komandi!

Og nú ætla ég að fara út að ganga flesta daga vikunnar!

Ef einhver vill koma með mér, þá er bara að hringja :-)

En nóg um það!

Um daginn var kona sem keyrði á nýja bílinn minn!

Sem betur fer var það ekki mikið, bara smá krumpa á brettinu og framljósið.

Ég er viss um að stálið í fína bílnum mínum er að minnsta kosti þverhandar þykkt!!!

Nú fer ég í það að láta laga þetta því auðvitað get ég ekki keyrt svona um bæinn.

Þetta er allt að skýrast.

Meira seinna :-)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú verð í hugann´okkar á meðan þetta stendur. Gangi þér sem allra best.
Jan

Gróa sagði...

Er ekki merkilegt hvað maður verður meðvitaður um þessa staði - þegar maður lendir þar inni. Meðan allt leikur í lyndi, þá hugsar maður ekki nóg um að gera lífið léttara fyrir fólk á stofnunum með því að spila og syngja fyrir það. En þegar maður er inni sjálfur, þá kemst ekki annað að en.........einhverntímann skal ég koma hingað og skemmta vistmönnum. Og þegar maður hefur gert það - þá líður manni vel lengi á eftir :) :)
Anna mín, ég óska þess og bið að allt gangi vel í þínum prósess og mun hugsa vel til þín.
Kveðja,
þín Gróa.

Nafnlaus sagði...

Hæ Anna Sigga mín, ég villtist algerlega hingað á síðuna þína eins og sauður, en er stálheppin að rekast á þig hér. Og þá sérstaklega óska ég þér góðs gengis í aðgerðinni, þvílíkur dugnaður og þor hjá þér kæra!!
Hlakka til að heyrast,
þín hulda björk.